Gufudalsvöllur er fjórði vinavöllurinn – fjórða árið í röð

Golfklúbbur Reykjavíkur hefur undirritað vinavallasamning Golfklúbb Hveragerðis fyrir komandi tímabil og er það í fjórða sinn sem klúbbarnir gera með sér slíkan samning. Gufudalsvöllur er jafnframt fjórði vinavöllurinn sem kynntur er félagsmönnum fyrir golftímabilið 2022.

Golfskálinn í Gufudal er vinalegur heim að sækja, Gufudalsvöllur er ein af perlunum í íslensku golfi og hefur verið einn vinsælasti golfvöllur landsins síðustu ár. Völlurinn skartar stórbrotnu umhverfi og náttúrufyrirbærum sem gera hann einstakan og hlýtur góða umhirðu ár eftir ár sem skilar sér í ástandi sem jafnast á við það besta á Íslandi.

Félagsmenn GR geta nýtt sér vinavallasamninginn við Hveragerði alla virka daga og geta bókað rástíma með tveggja daga fyrirvara, að öðru leyti gilda sömu reglur um leik á Gufudalsvelli og á öðrum vinavöllum. Félagsmenn GR greiða kr. 2.900 fyrir leik á vellinum sama hvort leiknar eru 9 eða 18 holur. Áður en leikur hefst skulu félagar staðfesta félagsaðild í afgreiðslu og ganga frá greiðslu vallargjalds. Samkomulagið gildir ekki ef félagsmenn leika með hópum sem gert hafa sérstaka samninga um afslætti, sbr. fyrirtækjamót.

Vefsíða Golfklúbbs Hveragerðis

Við vonum að ánægja sem með þennan áframhaldandi vinavallakost og að félagsmenn nýti sér aðgang að Gufudalsvelli á komandi sumri – allar upplýsingar um vinavelli félagsins er að finna hér á vefnum undir „Golfvellir – Vinavellir“

Golfklúbbur Reykjavíkur