Lokahóf og verðlaunaafhending barna og unglinga í Meistaramóti GR 2020 fer fram í golfskálanum Grafarholti þriðjudaginn 7. júlí kl. 18:00. Boðið verður upp á veitingar hjá Holtið klúbbhús.
Allir keppendur fá afhenta aðgöngumiða í lokahóf ásamt glaðningi þegar ræst er út á lokadegi í mótinu. Framvísa þarf aðgöngumiðanum í veitingasölu Grafarholts þegar lokahóf fer fram.
Við hvetjum alla þátttakendur, foreldra og forráðamenn til að mæta í lokahóf og vera viðstödd verðlaunaafhendingu.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Golfklúbbur Reykjavíkur