Næsta vetrarbingó eldri kylfinga haldið á föstudag

Næsta bingó eldri kylfinga, 60 ára og eldri verður haldið föstudaginn 4. nóvember. Bingó er liður í vetrarstarfi sem eldri kylfingar klúbbsins standa fyrir og hefst morguninn á því að pútta saman á efri hæð Korpunnar. Að pútti loknu sameinast hópurinn í í kaffi á neðri hæðinni og tekur þátt í bingó.

Karl Jóhannsson stýrir ferðinni en ásamt honum hafa þeir Kristján, Axel, Björn og Jónas umsjón með bingó viðburðum. Það eru ávallt flottir vinningar í boði og vel mætt á þennan viðburð sem að venju er haldinn mánaðarlega yfir vetrartímann. Í lokin er dregið úr bingóspjöldum og geta því allir átt von á vinning!

Þátttökugjald er kr. 500 og er mæting kl. 09:45.

Dagskrá föstudagsins er þessi:

Kl. 10:00 – Pútt
Kl. 10:30 – Kaffi
Kl. 11:00 – Bingó

Allir félagsmenn klúbbsins sem náð hafa 60 ára aldri eru hvattir til að mæta og taka þátt í þessum frábæra félagsskap.

Bingónefndin hlakkar til að sjá sem flesta í næsta bingó!

Golfklúbbur Reykjavíkur