Nóvemberbingó eldri kylfinga, 60+, haldið á föstudag – ath! breytt tímasetning

Bingó er liður í vetrarstarfi sem eldri kylfingar klúbbsins standa fyrir og hefst morguninn á því að pútta saman á efri hæð Korpunnar. Að pútti loknu sameinast hópurinn í í kaffi á neðri hæðinni og tekur þátt í bingó.

Karl Jóhannsson stýrir ferðinni en ásamt honum hafa þeir Kristján, Axel, Björn og Jónas umsjón með bingó viðburðum. Það eru ávallt flottir vinningar í boði og vel mætt á þennan viðburð sem að venju er haldinn mánaðarlega yfir vetrartímann. Í lokin er dregið úr bingóspjöldum og geta því allir átt von á vinning!

Þátttökugjald er kr. 500 og dagskrá föstudagsins er þessi:

Kl. 09:30 – Pútt
Kl. 10:00 – Kaffi
Kl. 10:30 – Bingó

ATH! Við byrjum hálftíma fyrr en venjulega!

Allir félagsmenn 60 ára aldri eru hvattir til að mæta og taka þátt í þessum frábæra félagsskap.

Bingónefndin hlakkar til að sjá sem flesta mæta!

Golfklúbbur Reykjavíkur