Opna Aukakrónur 2022 var leikið í blíðskapaveðri á Grafarholtsvelli í dag, fullbókað var í mótið og voru fyrstu keppendur ræstir út kl. 08:00 í morgun. Keppt var í höggleik þar sem verðlaun eru veitt fyrir 4 efstu, besta skor dagsins átti Arnór Ingi Finnbjörnsson úr GR, sem lauk leik á 64 höggum.
Í punktakeppni var keppt í karla- og kvennaflokki og verðlaun veitt fyrir 13 efstu í hvorum flokki fyrir sig auk þess sem nándarverðlaun eru veitt fyrir þann sem næstur er holu á öllum par 3 brautum vallarins. Öll úrslit dagsins má sjá í mótaskrá á Golfbox en helstu úrslit dagsins urðu þessi:
Höggleikur:
- Arnór Ingi Finnbjörnsson – GR, 64 högg
- Dagbjartur Sigurbrandsson – GR, 65 högg
- Elvar Már Kristinsson – GR, 67 högg
- Jóhannes Guðmundsson – GR, 68 högg
Punktakeppni karla:
- Davíð Jónsson – GSG, 41 punktur (betri á seinni 9)
- Sigurður Júlíus Leifsson – GR, 41 punktur
- Jón Haukur Jónsson – GBR, 40 punktar
- Hjalti Rúnar Sigurðsson – GO, 39 punktar
- Gunnar Ingi Björnsson – GM, 38 punktar (bestur á seinni 9)
- Daði Friðriksson – GK, 38 punktar (betri á seinni 9)
- Unnar Hólm Ólafsson – GV, 38 punktar (betri á síðustu 6)
- Ragnar Geir Hilmarsson – GKG, 38 punktar (betri á seinni 9)
- Jóhann Sölvi Júlíusson – GR, 38 punktar
- Sighvatur Dýri Guðmundsson – GKG, 37 punktar (betri á seinni 9)
- Sigþór Hilmisson – GÖ, 37 punktar
- Stefán Rósar Esjarsson – GM, 36 punktar (betri á seinni 9)
- Styrmir Erlendsson – GR, 36 punktar (bestur á síðustu 6)
Puntkakeppni kvenna:
- Ásdís Valtýsdóttir – GR, 39 punktar
- Laufey Valgerður Oddsdóttir – GR, 37 punktar
- Irmý Rós Þorsteinsdóttir – GG, 36 punktar (best á seinni 9)
- Bjargey Aðalsteinsdóttir – NK, 36 punktar (betri á síðustu 6)
- Anna Sólveig Snorradóttir – GK, 36 punktar
- Berglind Rut Hilmarsdóttir – GO, 35 punktar (betri á síðustu 3)
- Erna Steina Eysteinsdóttir – GR, 35 punktar
- Harpa Ægisdóttir – GR, 34 punktar
- Steinunn Sæmundsdóttir – GR, 33 punktar (best á seinni 9)
- Júlíana Guðmundsdóttir – GR, 33 punktar (betri á seinni 9)
- Ragnheiður H. Ragnarsdóttir – GKG, 33 punktar (jöfn)
- Þórunn Elfa Bjarkadóttir – GR, 33 punktar (jöfn)
- María Björk Pálsdóttir – GKG, 33 punktar (jöfn)
Nándarverðlaun:
2.braut – Ásdís Valtýsdóttir, 124cm
6.braut – Hjalti S. Sigurbjörnsson, 61cm
11.braut – Stefán Rósar Esjarsson, 183cm
17.braut – Anna Snædís Sigmarsdóttir, 198cm
18.braut – Goði Már Daðason, 66cm
Við þökkum keppendum kærlega fyrir daginn og óskum vinningshöfum til hamingju með sinn árangur í mótinu.
Haft verður samband við vinningshafa Aukakróna, aðra vinninga úr mótinu verður hægt að nálgast vinninga á skrifstofu klúbbsins frá kl. 12:00 þriðjudaginn 16. ágúst.
Golfklúbbur Reykjavíkur í samvinnu við Aukakrónur Landsbankans
ATH! Vinninga verður hægt að nálgast á skrifstofu klúbbsins til 30. september 2022