Vinkvennamót GR og GKG haldið 9. og 23. ágúst

Nú er komið að vinkvennamóti GR og GKG kvenna, mótið verður haldið 9. og 23. ágúst n.k.

GKG sækir GR heim og skráning hefst á Golfbox  kl. 12.00 fimmtudaginn 4. ágúst í GR mótið fyrir GKG konur og laugardaginn 6. ágúst opnar svo skráning GR kvenna í GR mótið.

GR sækir GKG heim og skráning hefst kl. 12.00 miðvikudaginn 17. ágúst í GKG mótið fyrir GR konur og föstudaginn 19. ágúst opnar skráning GKG kvenna í GKG mótið.

ATH! Kvennanefndirnar áskilja sér rétt til að taka út þær konur sem skrá sig í rástíma sem ekki eru ætlaðir þeim.

GKG konur greiða 3.500 kr. í Grafarholtið og 1.500 kr. á Leirdalsvöll.
GR konur greiða 3.500 kr. á Leirdalsvöll og 1.500 kr. í Grafarholtið.

Um er að ræða tveggja móta vinkvennakeppni milli golfklúbbanna GKG og GR. Einn hringur er leikinn hjá GKG og einn hjá GR, sá klúbbur sem fær flesta samanlagða punkta þessa tvo daga vinnur og verður miðað við 10 punktahæstu konur hvorn dag úr hvorum klúbbi.   Fyrra mótið er haldið í Grafarholti þriðjudaginn 9. ágúst þar sem rástímar verða á milli 10:00 – 12:00 og 14:00 – 15:52 og síðari hringurinn fer fram í Leirdalnum þriðjudaginn 23. ágúst þar sem rástímar verða á frá kl. 13:00 – 16:00.

Aðeins er leyft að skrá tvær konur frá hvorum klúbbi saman í ráshóp. Vinsamlegast virðið þá reglu, svo ekki komi til þess að við þurfum að færa konur milli ráshópa á öðrum tímum en þær hafa skráð sig.

Sameiginlegt lokahóf og verðlaunaafhending verður hjá GKG eftir spilið á Leirdalnum þann 23. ágúst.

Veitt verða verðlaun fyrir fyrstu þrjú sætin í punktakeppni þar sem hámarksforgjöf er 36 á hvorum velli fyrir sig, einnig verða veitt verðlaun fyrir höggleik án forgjafar samanlagt af báðum völlum. ATH að ekki er hægt að vinna bæði í punktakeppni og höggleik, einnig verða veitt verðlaun fyrir lengsta drive á einni braut á hvorum velli ásamt nándarverðlaunum á öllum par 3 holum.

Vinsamlegast millifæra inn á reikning: 0370-22-045208 – kt. 2307813899 (Guðrún Íris) ATH: Gjaldið fæst ekki endurgreitt ef afskráning er með minna en sólahrings fyrirvara.