Sumardaginn fyrsta, þann 24. apríl ætlar Golfklúbbur Reykjavíkur að halda opið hús á Korpu og koma okkur í gírinn fyrir komandi golfsumar – opið verður frá kl. 11:00 – 15:00.
Félagsmenn er hvattir til að kom sýna sig og sjá aðra, kynna sér starfsemi klúbbsins og sækja pokamerkin sín fyrir sumarið. Meðal þess sem verður í boði er eftirfarandi:
- Afhending pokamerkja.
- Boltakort Bása á 30% afslætti.
- Starfsfólk frá ÍSAM verður á staðnum með klúbbfatnað til mátunar og pöntunar á góðum kjörum – FJ – klúbbfatnaður 2025
- Starfsfólk 66° Norður verður einnig á staðnum og býður upp á fatnað sem er kjörin í golfið á góðum afslætti – 66° – GR dagurinn 2025
- Íþróttastjóri ásamt þjálfurum barna- og unglingastarfs GR verða á svæðinu. Þau fræða okkur meðal annars um æfingar og golfleikjaskólann.
- Kvennanefnd GR mætir og kynnir sitt frábæra starf ásamt því að bjóða upp á skemmtilegan leik.
- Kynning á félagsstarfi – MercedesBenz bikarinn (Holukeppni GR) og FootJoy bikarinn (Liðakeppni GR).
- Yfirvallarstjóri GR verður á svæðinu og gefur félagsmönnum nýjustu upplýsingar um framkvæmdir og ástand valla.
- Yfirdómari GR lætur sig ekki vanta og aldrei að vita nema að hann verðir með spurningar úr golfreglum, eitthvað sem allir þurfa að kunna.
Léttar veitingar í boði – kaffi, kleinur og kaka – eitthvað fyrir alla!
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Golfklúbbur Reykjavíkur