GR-dagurinn – opið hús – Sumardaginn fyrsta 24. apríl

Sumardaginn fyrsta, þann 24. apríl ætlar Golfklúbbur Reykjavíkur að halda opið hús á Korpu og koma okkur í gírinn fyrir komandi golfsumar – opið verður frá kl. 11:00 – 15:00.

Félagsmenn er hvattir til að kom sýna sig og sjá aðra, kynna sér starfsemi klúbbsins og sækja pokamerkin sín fyrir sumarið. Meðal þess sem verður í boði er eftirfarandi:

  • Afhending pokamerkja.
  • Boltakort Bása á 30% afslætti.
  • Starfsfólk frá ÍSAM verður á staðnum með klúbbfatnað til mátunar og pöntunar á góðum kjörum – FJ – klúbbfatnaður 2025
  • Starfsfólk 66° Norður verður einnig á staðnum og býður upp á fatnað sem er kjörin í golfið á góðum afslætti – 66° – GR dagurinn 2025
  • Íþróttastjóri ásamt þjálfurum barna- og unglingastarfs GR verða á svæðinu. Þau fræða okkur meðal annars um æfingar og golfleikjaskólann.
  • Kvennanefnd GR mætir og kynnir sitt frábæra starf ásamt því að bjóða upp á skemmtilegan leik.
  • Kynning á félagsstarfi – MercedesBenz bikarinn (Holukeppni GR) og FootJoy bikarinn (Liðakeppni GR).
  • Yfirvallarstjóri GR verður á svæðinu og gefur félagsmönnum nýjustu upplýsingar um framkvæmdir og ástand valla.
  • Yfirdómari GR lætur sig ekki vanta og aldrei að vita nema að hann verðir með spurningar úr golfreglum, eitthvað sem allir þurfa að kunna.

Léttar veitingar í boði – kaffi, kleinur og kaka – eitthvað fyrir alla!

Hlökkum til að sjá sem flesta!
Golfklúbbur Reykjavíkur