Guðmundur Ágúst og Nick Carlson komust áfram á lokaúrtökumótið fyrir DP World Tour

Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR komst óvænt inn af biðlista en Bandaríkjamaðurinn Nick Carlson úr GM var búinn að tryggja sig inn á lokaúrtökumótið sem fram fer á Infinitum Golf (Lakes & Hills) við borgina Tarragona á Spáni 8.-13. nóvember. Á lokaúrtökumótinu keppa 156 kylfingar og fá 25 efstu kylfingarnir keppnisrétt á DP World Tour á næsta tímabili.