Haraldur Franklín endaði í 13. sæti í Suður-Afríku

Haraldur Franklín náði góðum árangri á atvinnumóti, Bain‘s Whisky Cape Town Open, sem fram fór í Suður-Afríku um liðna helgi. Haraldur endaði í 13. sæti á samtals -11 en hann lék hringina fjóra á alls 277 höggum (69-66-76-66). Mótið var leikið á Royal Cape Golf Club, í Höfðaborg.

Bain‘s Whisky Cape Town Open var hluti af Challenge Tour, sem er mótaröð í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í karlaflokki í Evrópu.

Skor og stöðu keppenda úr mótinu má sjá hér

Mikael Lindberg frá Svíþjóð sigraði á 16 höggum undir pari en hann tryggði sér sigurinn í bráðabana gegn Ryan Van Velzen frá Suður-Afríku.

Næsta mót hjá Haraldi hefst á fimmtudag og verður leikið dagana 15.-18. febrúar. Það mót heitir Dimension Data Pro-Am og fer fram á Fancourt golfsvæðinu við borgina George í Suður-Afríku.

Við óskum Haraldi til hamingju með flottan árangur um helgina og hlökkum til að fylgjast með næstu keppni.

Golfklúbbur Reykjavíkur