Haraldur Franklín tekur þátt á þremur mótum í Suður-Afríku

Haraldur Franklín Magnús, úr Golfklúbbi Reykjavíkur, hefur leik fimmtudaginn 8. febrúar á atvinnumóti Áskorendamótaraðarinnar  sem fram fer í Suður-Afríku. Mótið heitir Bain‘s Whisky Cape Town og er hluti af Challenge Tour mótaröðinni og er leikið á Royal Cape Golf Club í Cape Town.

Allar upplýsingar um mótið – rástíma, skor og stöðu má sjá hér

Í síðustu viku lék Haraldur Franklín á SDC Open sem fram fór á Zebula golfsvæðinu við Limpopo í Suður-Afríku. Þar komst Haraldur ekki í gegnum niðurskurð.

Dagana 15.-18. febrúar er Haraldur á keppendalista í þriðja mótinu í Suður-Afríku. Það mót heitir Dimension Data Pro-Am og fer fram á Fancourt golfsvæðinu við borgina George í Suður-Afríku. Öll þrjú mótin eru hluti af Challenge Tour, sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða karla í Evrópu.

Við óskum Haraldi Franklín alls hins besta á vellinum i Suður-Afríku.

Golfklúbbur Reykjavíkur