Arnar Snær býður upp á helgarnámskeið í golfi dagana 22. og 23. júní og má sjá nánari upplýsingar um námskeiðin má sjá hér fyrir neðan.
Byrjendanámskeið 1 (09:00-11:00)
Frábært námskeið fyrir byrjendur sem vilja læra grunnatriðin í golfi þar sem farið verður alla þætti í sportinu. Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta á sunnudeginum verður farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið er fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 09:00-11:00. Námskeiðið er laugardaginn 22.júní og sunnudaginn 23.júní og verður í Básum, Grafarholti
Byrjendanámskeið 2 (12:00-14:00)
Frábært námskeið fyrir byrjendur sem vilja læra grunnatriðin í golfi þar sem farið verður alla þætti í sportinu. Á laugardeginum verður farið í allt sem við kemur stuttaspilinu farið verður í grunnatriði í hverjum hluta á sunnudeginum verður farið yfir sveifluna og tæknina á bakvið hana. Námskeiðið er fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 12:00-14:00. Námskeiðið er laugardaginn 22.júní og sunnudaginn 23.júní og verður í Básum, Grafarholti
Stuttaspilsnámskeið (14:00-16:00)
Frábært námskeið fyrir alla almenna kylfinga sem vilja fá betri þekkingu og æfingar þegar kemur að stuttaspilinu. Á laugardeginum tökum við fyrir vipp og pútt og á sunnudeginum tökum við fyrir glompuhögg og förum yfir hvernig við leysum allskonar „vandræða“ legur sem koma upp í kringum flatirnar. Námskeiðið er fjórir tímar (4x 60 mín) og verður kennt á laugardeginum og sunnudeginum frá klukkan kl. 14:00-16:00. Námskeiðið er laugardaginn 22.júní og sunnudaginn 23.júní og verður í Básum, Grafarholti
Verð pr. námskeið kr. 22.000 (Boltar ekki innifaldir)
Hámarksfjöldi í hverjum hóp eru fjórir kylfingar. Kennari verður Arnar Snær Hákonarsson PGA golfkennari og fara skráningar fram í gegnum netfangið arnarsn@grgolf.is