Hjóna- og parakeppni Golfklúbbs Reykjavíkur verður haldin í Grafarholti laugardaginn 17. júní. Mótið er innanfélagsmót. Keppnisfyrirkomulag er Greensome þar sem tvö leika saman í liði. Til að mynda liðsforgjöf fær liðið 40% af leikforgjöf hærri leikmans og 60% af lægri leikforgjöf. Hámarksforgjöf karla er 24 og hjá konum 28.
Ræst er út samtímis af öllum teigum kl. 08:00, mæting kl. 07:00.
Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir 3 efstu sætin auk nándarverðlauna á öllum par 3 holum vallarins.
Skráning í mótið hefst í mótaskrá Golfbox föstudaginn 9. júní, kl. 13:00
Mótsgjald er kr. 6.500 á mann og greiðist hjá veitingasala þegar mætt er til leiks. Innifalið í mótsgjaldi eru veitingar að móti loknu og verður boðið upp á:
- Focaccia Flatbrauð með hráskinku + aioli og Reyktum lax + rækjum
- Nautapiparsteik með koníakspiparsósu
- Kaffi og konfekt bitar
Pylsu partý!!! – Boðið upp á pylsur á tveimur stöðum á vellinum á meðan á leik stendur.
Hæ hó jibbí jei, það styttist í Hjóna- og para!
Golfklúbbur Reykjavíkur