Innanfélagsmót 70 ára og eldri – 2. umferð leikin 14. júlí

Önnur umferð í Innanfélagsmóti 70 ára og eldri verður leikin föstudaginn 14. júlí. Mótið er 9 holur og verður lykkja dagsins, Landið, leikin. Ræst verður út frá kl. 08:30-11:15.

Veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í punktakeppni karla og kvenna og besta skor karla og kvenna. Nándarverðlaun verða einnig veitt í karla og kvennaflokki þeim sem er næst/ur holu á 22. og 25. braut ásamt lengsta upphafshöggi á 23. braut.

Leikdagsetningar fyrir sumarið 2023 eru þessar:

  • 23.júní
  • 14.júlí
  • 4.ágúst
  • 25.ágúst

Verðlaunaafhending fer fram að leik loknum og þurfa verðlaunahafar að vera viðstaddir. Þeir sem ekki vinna til verðlauna hafa möguleika á vinning þar sem dregið verður úr skorkortum um 4 vinninga.

Opnað verður fyrir skráningu í aðra umferð föstudaginn 7. júlí, hægt er að skrá sig til leiks i mótaskrá á Golfbox og í golfbúðinni á Korpu. Kylfingar greiða mótsgjald, kr. 1.000 hjá mótsstjóra, Karli Jóhannssyni, þegar mætt er til leiks.

Í lok sumars verður punktahæsti kylfingurinn í karla- og kvennaflokki útnefndur sigurvegari fyrir mótaröð sumarsins.

Nefndin