Íslandsmót golfklúbba í 1. deild karla fer fram á Jaðarsvelli á Akureyri dagana 25.-27. júlí 2024.
Golfklúbbur Mosfellsbæjar hefur titil að verja sigri eftir 3-2 sigur gegn Golfklúbbi Akureyrar í úrslitaleiknum í fyrra. Það var í fjórða sinn sem GM fagnaði þessum titli en klúbburinn vann síðast árið 2015.
Í þessari frétt er að finna upplýsingar um rástíma, stöðu og úrslit
Smelltu hér til að nálgast stöðu leikja og allar umferðir í einu skjali.
Alls keppa átta lið um Íslandsmeistaratitil golfklúbba 2024. Liðunum er skipt í tvo fjögurra liða riðla.
Hvert lið leikur þrjá leiki í riðlakeppninni. Í hverri viðureign eru leiknir tveir fjórmenningsleikir og þrír tvímenningsleikir og munu tvö efstu liðin úr hvorum riðli komast í undanúrslit og neðsta liðið fellur í 2. deild.
A-riðill:
Golfklúbbur Mosfellsbæjar
Golfklúbbur Kópavogs – og Garðabæjar
Golfklúbburinn Keilir
Golfklúbburinn Setberg
B-riðill:
Golfklúbbur Akureyrar
Golfklúbbur Reykjavíkur
Golfklúbbur Selfoss
Golfklúbbur Suðurnesja
Áfram GR!