Íslandsmót golfklúbba 2024, 1. deild karla – lið GR í þriðja sæti

Íslandsmót golfklúbba 2024 í 1. deild karla var leikið á Jaðarsvelli hjá Golfklúbbi Akureyrar dagana 25. – 27. júlí. Það voru lið GKG og GK sem léku til úrslita um titilinn þar sem að GKG sigraði 4-1.

Þetta er í 9. skipti sem GKG sigrar í efstu deild Íslandsmóts golfklúbba. Í undanúrslitum sigraði Keilir lið Golfklúbbs Reykjavíkur 3-2. GKG sigraði GA 4,5-0,5.

Alls kepptu átta lið um Íslandsmeistaratitil golfklúbba 2024 og varð lokastaðan þessi:

1. Golfklúbbur Kópavogs – og Garðabæjar, GKG
2. Golfklúbburinn Keilir, GK
3. Golfklúbbur Reykjavíkur, GR
4. Golfklúbbur Akureyrar, GA
5. Golfklúbbur Selfoss, GOS
6. Golfklúbbur Mosfellsbæjar, GM
7. Golfklúbbur Suðurnesja, GS
8. Golfklúbburinn Setberg, GSE

Öll úrslit og stöðu úr mótinu má sjá hér

Við óskum GKG til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn, öðrum vinningshöfum og okkar strákum til hamingju með árangurinn.

Áfram GR!