Customize Consent Preferences

Þessi vefur nýtir sér vafrakökur (e. web cookies) til að bæta virkni hans og hjálpa stjórnendum vefsins að greina notkun hans.

Það er stefna Golfklúbbur Reykjavíkur að nota vafrakökur með ábyrgum hætti.

Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við persónuverndarlög.... 

Always Active

Necessary cookies are required to enable the basic features of this site, such as providing secure log-in or adjusting your consent preferences. These cookies do not store any personally identifiable data.

No cookies to display.

Functional cookies help perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collecting feedback, and other third-party features.

No cookies to display.

Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics such as the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.

No cookies to display.

Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.

No cookies to display.

Advertisement cookies are used to provide visitors with customized advertisements based on the pages you visited previously and to analyze the effectiveness of the ad campaigns.

No cookies to display.

Jóhannes vann Hvaleyrarbikarinn í bráðabana

Hvaleyrarbikarinn fór fram um helgina hjá Golfklúbbnum Keili og var leikinn á 54 holum með niðurskurði eftir 36 holur. Alls voru 96 kylfingar skráðir til leiks, og er mótið eitt af stærstu mótum ársins fyrir fremstu kylfinga landsins.

Atvinnukylfingarnir Haraldur Franklín og Guðmundur Ágúst létu sig ekki vanta, ásamt margföldum Íslandsmeistara Ragnhildi Sigurðardóttur. Keppnin var hörð bæði í karla- og kvennaflokki.

Í kvennaflokki bar Heiðrún Anna frá Golfklúbbi Selfoss sigur úr býtum eftir frábært golf alla dagana. Elsa Maren úr Golfklúbbi Reykjavíkur elti fast á hæla hennar og endaði í öðru sæti, aðeins fimm höggum á eftir Heiðrúnu Önnu.

Í karlaflokki þurfti að grípa til bráðabana til að skera úr um sigurvegara. GR-ingarnir Jóhannes Guðmundsson og Guðmundur Ágúst ettu þar kappi, og hafði Jóhannes betur og sigraði í mótinu. Af tíu efstu kylfingum í karlaflokki voru sjö úr Golfklúbbi Reykjavíku og í kvennaflokki voru fjórar GR-konur í hópi tíu efstu.

Hér má líta viðtal við Jóhannes eftir sigurinn:

Þrautseigjan til staðar

Jóhannes Guðmundsson úr GR fagnaði sigri í karlaflokki eftir bráðabana við reynsluboltann Guðmund Ágúst Kristjánsson.

„Þegar komið er í bráðabana þá reyni ég að forðast mistök. Þetta er maður á móti manni og ég nálgast það þannig að gera ekki mistök. Ekki síst eins og holustaðsetningin var á 15. flötinni í dag. Að reyna að komast nálægt í öðru höggi er svolítil áhætta,“ segir Jóhannes sem var þolinmóður í mótinu.

„Þrautseigjan skipti mestu máli. Völlurinn er erfiður og þá sérstaklega seinni 9 holurnar. Þar eru nokkrar holur sem eru mjög strembnar. Besta veðrið var fyrsta keppnisdaginn en vindurinn varð erfiðari eftir það. Þá gat maður þurft að sætta sig við að vera ekki verðlaunaður fyrir góð högg. Maður verður bara að takast á við það.“

Jóhannes segir Hvaleyrarvöll henta sér ágætlega og verður áhugavert að sjá til hans á Íslandsmótinu í ágúst.

„Völlurinn er frábær og hentar mér vel. Ég er tiltölulega högglangur og seinni 9 holurnar eru þannig að maður græðir á högglengd. En Íslandsmótið er fjögurra daga mót og þá reynir enn meira á þrautseigjuna. Það byrja allir jafnir og maður þarf að malla í gegnum slíkt mót. Maður getur spilað mótið frá sér á fyrsta degi en getur ekki unnið mótið á fyrsta degi. Vonandi verð ég í toppbaráttunni þegar nokkrar holur eru eftir,“ segir Jóhannes Guðmundsson.

Áfram GR!