Hjóna- og parakeppni GR fór fram í dag, þriðjudaginn 17. júní á Grafarholtsvelli. Mótið var fullsetið og fylltist mótið á stuttri stundu og var langur biðlisti. Það mættu 68 hjón/pör til leiks, fengu á sig smá rigningu en fínasta golfveður. Leikið var með Greensome fyrirkomulagi, stoppað í pylsu á leiðinni og var þjóðhátíðarstemmning yfir vellinum. Veitt voru verðlaun fyrir fyrstu fimm sætin ásamt nándarverðlaunum á öllum par 3 hollum vallarins. Keppnin var jöfn en sigurvegarar dagsins voru hjónin Júlíus Ingi Jónsson og Ragnhildur Ágústsdóttir.
Úrslit mótsins voru eftirfarandi:
- Júlíus Ingi Jónsson og Ragnhildur Ágústsdóttir 62 nettó
- Karen Guðmundsdóttir og Andri Þór Björnsson 63 nettó (betri seinni 9)
- Rut Hreintsdóttir og Guðmundur Bjarni Harðarson 63 nettó
- Guðný Brynhildur Þórðardóttir og Björn Ólafur Bragason 64 nettó(best seinni 9)
- Halldóra Jóhannsdóttir og Gunnlaugur K Guðmundsson 64 nettó
Nándarverðlaun
2.braut: Eysteinn Jónsson 73,5 cm
6.braut: Arnar Ottesen 3,24 m
11.braut: Gunnlaugur H Jóhannsson 1,55 m
17.braut: Kristján Ágústsson 1,23 m
Golfklúbbur Reykjavíkur óskar vinningshöfum til hamingju með flottan árangur og þakkar fyrir vel heppnað 17. júní þjóðhátíðarmót. Einnig þökkum við þeim styrktaraðilum sem gáfu frábær verðlaun fyrir stuðninginn.