Customize Consent Preferences

Þessi vefur nýtir sér vafrakökur (e. web cookies) til að bæta virkni hans og hjálpa stjórnendum vefsins að greina notkun hans.

Það er stefna Golfklúbbur Reykjavíkur að nota vafrakökur með ábyrgum hætti.

Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við persónuverndarlög.... 

Always Active

Necessary cookies are required to enable the basic features of this site, such as providing secure log-in or adjusting your consent preferences. These cookies do not store any personally identifiable data.

No cookies to display.

Functional cookies help perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collecting feedback, and other third-party features.

No cookies to display.

Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics such as the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.

No cookies to display.

Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.

No cookies to display.

Advertisement cookies are used to provide visitors with customized advertisements based on the pages you visited previously and to analyze the effectiveness of the ad campaigns.

No cookies to display.

Kalla Jó mótaröðin – mótaröð eldri kylfinga

Karl Jóhannsson sá um golfmótaröð fyrir eldri kylfinga 70 ára og eldri.  Að venju verður mótaröðin vinsæla þar sem leiknar eru 9 holur á Korpu í hvert sinn og mun mótaröðin heita Kalla Jó mótaröðin. Opnað hefur verið fyrir skráningu í fyrsta mót sumarsins. Í sumar verða mótin 6 talsins og öll á föstudögum, nema eitt sem verður á fimmtudegi (14. ágúst).

Mótin eru fyrir 70 ára og eldri kylfinga sem eru meðlimir í Golfklúbbi Reykjavíkur. Veitt verða verðlaun eftir hvert mót og að auki verður safnmót þar sem árangur úr þremur bestu mótunum hjá hverjum kylfingi gildir til árangurs. Keppt er í höggleik án forgjafar og punktakeppni með forgjöf bæði í karla- og kvennaflokki. Hámarks leikforgjöf í þessu mótum verður 36 sem þýðir hámarksforgjöf í hverju 9 holu móti er 18 högg.

 

Leikdagar í mótaröðinni eru eftirfarandi:

Mót 1   Föstudaginn 23. maí                 Áin

Mót 2   Föstudaginn 13. júní                 Áin

Mót 3   Föstudaginn   4. júlí                  Landið

Mót 4   Föstudaginn   25. júlí                Áin

Mót 5   Fimmtudaginn 14. ágúst          Áin

Mót 6   Föstudaginn   12. sept.              Áin

 

Við hvetjum okkar eldri kylfinga til að eiga skemmtilega, gefandi og nærandi stund saman á golfvellinum. Góða skemmtun!