Frá og með mánudeginum 11. september verður Korpan bókuð sem 3x 9 holu lykkjur – Korpa Áin, Korpa Landið og Korpa Sjórinn. Bókanir fyrir 11. september opnast kl. 20:00 næstkomandi sunnudag, 3. september.
Frá og með 11. september verður því enginn 18 holu völlur til bókunar á Korpu í Golfbox.
Félagsmönnum er bent á að ef þeir ætla að leika 18 holur þurfa þeir að skrá sig aftur í rástíma á seinni 9 – lágmarkstími milli bókana verður 2 tímar og 10 mínútur.
Golfklúbbur Reykjavíkur