Við minnum félagsmenn á að frá og með deginum í dag, 12. september er Korpan leikin sem 3x 9 holur – Korpa Áin, Korpa Landið og Korpa Sjórinn.
Samhliða verður því enginn 18 holu völlur til bókunar á Korpu í Golfbox. Þeim félagsmönnum sem ætla að leika 18 holur er bent á að þá þarf að skrá sig aftur í rástíma á seinni 9 – lágmarkstími milli bókana verður 2 tímar og 10 mínútur.
Njótum haustsins!
Golfklúbbur Reykjavíkur