Á síðasta ári var komið á laggirnar liðakeppni fyrir 65 ára og eldri kylfinga. Sú keppni verður aftur í ár. Tveir keppendur eru í hverju liði. Hver leikur er 9 holu holukeppni og leikið verður á 9 holu legg Korpu. Liðið með lægra samanlagt nettóskor vinnur holu.
Samanlagt nettóskor er fjöldi högga að frádregnum forgjafarhöggum á viðkomandi holu.
Leiknar verður 7 umferðir. Dregið verður um það hvaða lið mætast í fyrstu fjórum umferðunum. Að fjórum umferðum loknum verður liðum raðað saman eftir stöðu þeirra í keppninni, þannig að efstu liðin mætast innbyrðis og neðstu liðin mætast innbyrðis.
Ákveðið hefur verið að hámarka leikforgjöf við 30 hjá konum og 24 hjá körlum. Í 9 holu keppni fá karlar því mest 12 högg í forgjöf og konur 15 högg.
Ein veigamikil breyting er á fyrirkomulaginu frá því í fyrra. Í stað þess að liðin komi sér saman um leikdag á leiktíma verður þeim úthlutað rástímum. Hámarksfjöldi liða í þessari keppni er 24 lið og gildir reglan fyrstir skrá sig fyrstir fá þátttökurétt. Auglýst verður hvenær skráning hefst.
Leikdagar og rástímar í liðakeppni eldri kylfinga verður eftirfarandi:
Umferð Leikdagur Rástímar Leikdagur Rástímar
1 Mán. 26. maí 11:00 – 11:40 Á fim. 29. maí 13:00-13:40 Á
2 Mán. 9. júní 11:00 – 11:40 L fim. 12. júní 13:00-13:40 L
3 Mán. 23. júní 11:00 – 11:40 S fim. 26. júní 13:00-13:40 S
4 Mán. 14. júlí 13:00 – 13:40 L þri. 15. júlí 11:00 – 11:40 L
5 Þri. 5. ágúst 13:00-13:40 Á fim. 8. ágúst 11:00 – 11:40 Á
6 Mán. 18. ág. 13:00-13:40 S fim. 21. ágúst 11:00 – 11:40 S
7 Mán. 1. sept. 11:00 – 11:40 Á mán. 1. sept. 13:00 – 13:40 Á