Lokahóf & verðlaunaafhending verður haldið á 2. hæð Korpunnar næstkomandi laugardag, 8. júlí. Allir þátttakendur í Meistaramóti fá afhentan aðgöngumiða í lokahóf á síðasta keppnisdegi sem framvísa þarf hjá starfsfólki í veitingasölu þegar mætt er á laugardag.
Salurinn opnar kl. 18:00 og verður boðið upp á veitingar að hætti KH Klúbbhús, salurinn verður að minnsta kosti tvísetinn og því ekki úr vegi að mæta snemma og fylgjast með keppendum í meistaraflokk ljúka leik. Live-skor verður birt á skjá á báðum hæðum hússins og mun enginn annar sjálfur LADDI hafa ofan af fyrir matargestum á meðan beðið er eftir að keppendur ljúki leik.
Verðlaunaafhending er áætluð um kl. 21:00 og þegar klúbbmeistarar GR 2023 hafa verið krýndir mun Herbert Guðmundsson keyra upp stemmningu á Korpuloftinu sem gestir munu svo halda gangandi frameftir kvöldi við ljúfa tóna.
Fyrir þá sem ekki taka þátt í mótinu en vilja mæta í Lokahóf – borða og gleðjast með keppendum þá er hægt að kaupa miða í veitingasölu KH Klúbbhús á Korpu og er miðaverð kr. 5.990.
Nokkur atriði:
- 20 ára aldurstakmark er á svæðið
- Ekki þarf að skrá sig sérstaklega í Lokahóf
- Mikilvægt er að muna eftir aðgangsmiða
Hlökkum til að gleðjast með ykkur á lokahófi!
Golfklúbbur Reykjavíkur