Lokaumferð í Innanfélagsmóti 70+ leikin föstudaginn 15. september

Fimmta og síðasta umferð í Innanfélagsmóti 70 ára og eldri verður leikin föstudaginn 15. september. Mótið er 9 holur og verður Áin leikin, ræst verður út frá kl. 08:30-11:15.

Veitt eru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í punktakeppni karla og kvenna og besta skor karla og kvenna. Nándarverðlaun verða einnig veitt í karla og kvennaflokki þeim sem er næst/ur holu á 13. og 17. braut ásamt lengsta upphafshöggi á 15. braut. Ath! Vinningshafar geta einnig unnið til aukaverðlauna.

Verðlaunaafhending fer fram að leik loknum og þurfa verðlaunahafar að vera viðstaddir. Þeir sem ekki vinna til verðlauna hafa möguleika á vinning þar sem dregið verður úr skorkortum um 4 vinninga. Eftir lokaumferð verða sigurvegarar á stigalista í karla- og kvennaflokki einnig útnefndir.

Opnað hefur verið fyrir skráningu í mótaskrá á Golfbox og í golfbúðinni á Korpu. Kylfingar greiða mótsgjald, kr. 1.000 hjá mótsstjóra, Karli Jóhannssyni, þegar mætt er til leiks.

Hvetjum alla til að skrá sig til leiks í lokaumferð!

Nefndin