Meistaramót: 4ra daga keppni hefst á miðvikudag – rástímar fyrstu tvo dagana birtir

Á miðvikudag hefst 4ra daga keppni Meistaramóts GR 2023, þá hefja leik 1. og 2. flokkur karla og kvenna, lægstu forgjafaflokkar 50 ára og eldri í karla- og kvennaflokki ásamt meistaraflokkum karla og kvenna. Rástímar fyrstu tvo dagana hafa nú verið birtir í mótaskrá á Golfbox.

Í Grafarholti hefja meistaraflokkar og 2. flokkur karla og kvenna leik, þessir flokkar spila tvo hringi í Grafarholti og seinni tvo hringina á Korpúlfsstaðavelli þar sem þeir ljúka leik á laugardag. Rástíma þessara flokka er að finna í Golfbox undir mótinu „Meistaramót GR 2022 – 4 dagar Mfl.kk&kvk og 2.flokkur kk&kvk“

Á Korpu hefja 1. flokkur karla og kvenna leik ásamt lægri forgjafaflokkum 50 ára og eldri í karla- og kvennaflokki. Rástíma þessara flokka er að finna í Golfbox undir mótinu „Meistaramót GR 2023 – 4 dagar 1.fl.kk&kvk & 50+ lægstu forgjafaflokkar“

Upplýsingar um skor og stöðu í mótinu verður hægt að sjá inni mótum á Golfbox.

Eins og fyrri daga í meistaramótsviku þá mun KH Klúbbhús opna veitingasölu í klúbbhúsum félagsins hálftíma fyrir fyrsta rástíma.

Golfæfingasvæði Bása verður opið frá kl. 06-22 sunnudag til föstudags og verður boðið upp á fría upphitunarbolta fyrir keppendur alla mótsdaga.

Allar helstu upplýsingar er hægt að finna hér á vefnum undir Golf – Meistaramót

Góða skemmtun og gangi ykkur vel!
Golfklúbbur Reykjavíkur