Meistaramót Golfklúbbs Reykjavíkur 2024 hefst á sunnudag og verður leikið dagana 7. – 13. júlí . Keppni fer fram á Grafarholtsvelli og á Korpúlfsstaðarvelli, Sjórinn/Áin, líkt og undanfarin ár. Sunnudaginn 7. júlí til þriðjudagsins 9. júlí leika allir barna- og unglingaflokkar, 50 ára og eldri karlar í forgjafarflokkum 10,5 og hærra, 50 ára og eldri konur í forgjafarflokkum 16,5 og hærra. Þá leika einnig 3. og 4. flokkur karla og kvenna og 5. flokkur karla. Þessir flokkar leika þriggja daga mót eða 54 holur.
Miðvikudaginn 10. júlí til laugardagsins 13. júlí leika karlar 50 -64 ára í forgjafarflokk 0-10,4 og konur 50 -64 ára í forgjafarflokk 0-16,4, 2.flokkur karla og kvenna, 1.flokkur karla og kvenna og Meistaraflokkur karla og kvenna. Þessir flokkar leika fjögurra daga mót eða 72 holur.
Nánari skiptingu flokka er að finna hér – Meistaramót
Keppendur 18 ára og yngri leika í sínum aldursflokki nema að þeir hafi meistaraflokksforgjöf þá er þeim heimilt að leika í Meistaraflokki.
Í meistaramótsviku verður keppendum boðið upp 50 bolta fötu í Básum til upphitunar alla mótsdaga og hvetjum við alla til að nýta sér það.
Skráning í mótið stendur nú yfir og fer fram í mótaskrá á Golfbox. Skráningu lýkur fimmtudaginn 4. júlí kl.12:00 – greiða þarf mótsgjald við skráningu. Innifalið í mótsgjaldi eru veitingar og skemmtun í lokahófi á laugardagskvöldi.
Athugið!
Hámarksfjöldi í hvern flokk er 90 manns, ef full skráning verður ekki í alla flokka er hægt að fjölga í öðrum flokkum. Raðað er inn í flokka eftir skráningartíma. Sú forgjöf sem kylfingar eru með þegar skráningu lýkur, gildir í mótinu.
Mótsgjöld:
4ra daga mót, 72 holur = 12.900 kr.
3ja daga mót, 54 holur = 11.900 kr.
Börn og unglingar
B&U 3ja daga mót, 54 holur = 9.000
Allar upplýsingar um Meistaramót, áætlaða rástíma og skiptingu flokka, er að finna á hér á vefnum undir „Golf – Meistaramót“
Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur – Skráning og mætingar í mót.
9.1 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag.