Meistaramót hefst á sunnudag – lokahóf laugardaginn 8. júlí

Meistaramót GR 2023 hefst næstkomandi sunnudag og stendur skráning yfir til kl. 12:00 á fimmtudag, 29. júní. Keppni fer fram á báðum völlum félagsins eins og fyrri ár, 3ja daga keppni verður leikin frá sunnudegi til þriðjudags en þá hefst 4ra daga keppni sem lýkur svo með lokahófi og verðlaunaafhendingu laugardagskvöldið 8. júlí.

Lokahóf & verðlaunaafhending verður haldið á 2. hæð Korpunnar. Allir þátttakendur í mótinu fá afhentan aðgöngumiða í lokahóf á síðasta keppnisdegi sem framvísa þarf hjá starfsfólki í veitingasölu þegar mætt er á laugardag.

Salurinn opnar kl. 18:00 og verður boðið upp á veitingar að hætti KH Klúbbhús, salurinn verður að minnsta kosti tvísetinn og því ekki úr vegi að mæta snemma og fylgjast með keppendum í meistaraflokk ljúka leik. Live-skor verður birt á skjá á báðum hæðum hússins og mun enginn annar sjálfur LADDI hafa ofan af fyrir matargestum á meðan beðið er eftir að keppendur ljúki leik.

Verðlaunaafhending er áætluð um kl. 21:00 og þegar klúbbmeistarar GR 2023 hafa verið krýndir mun Herbert Guðmundsson keyra upp stemmningu á Korpuloftinu sem gestir munu svo halda gangandi frameftir kvöldi við ljúfa tóna.

Fyrir þá sem ekki taka þátt í mótinu en vilja mæta í Lokahóf –  borða og gleðjast með keppendum þá verður hægt að kaupa miða í veitingasölu KH Klúbbhús á Korpu frá og með þriðjudeginum 4. júlí og er verðið kr. 5.990.

Nokkur atriði:

  • 20 ára aldurstakmark er á svæðið
  • Ekki þarf að skrá sig sérstaklega í Lokahóf
  • Mikilvægt er að muna eftir aðgangsmiða

Hlökkum til að gleðjast með ykkur í skemmtilegustu viku sumarsins!

Golfklúbbur Reykjavíkur