Lokahóf og verðlaunaafhending barna & unglinga í Meistaramóti GR 2023 fer fram í golfskálanum Grafarholti þriðjudaginn 4. júlí kl. 18:00.
Allir keppendur fá afhenta aðgöngumiða fyrir mat í lokahóf þegar ræst er út á lokadegi í mótinu.
Framvísa þarf aðgöngumiða veitingasölu og verður hamborgari, franskar og drykkur í boði.
Við hvetjum alla þátttakendur, foreldra og forráðamenn til að mæta í lokahóf og vera viðstödd verðlaunaafhendingu.
Hlökkum til að sjá ykkur!
Golfklúbbur Reykjavíkur