Búið er að opna fyrir skráningu í Holukeppni GR, enn eitt árið. Sem fyrr er Bílaumboðið Askja styrktaraðili mótsins og er keppt um Mercedes-Benz bikarinn.
Keppnin er opin öllum meðlimum GR 18 ára og eldri. Leikið er með forgjöf en hæst eru þó gefin 36 forgjafarhögg. Þegar skráningu lýkur er dregið um röð keppenda. Tilkynnt er hverjir mætast í fyrstu umferð og keppendur sem mætast mæla sér mót og þurfa að ljúka leika fyrir tilgreind tímamörk.
Eftir hvern leik heldur sigurvegarinn áfram keppni og vinnur sér keppnisrétt í næstu umferð. Sá sem tapar leik hefur þar með lokið keppni.
Golfbox kerfið getur haldið utan um allt að 128 keppendum, þannig að það er fjöldinn sem mest getur verið með. Fyrstir skrá sig, fyrstir fá að vera með.
Fyrsta umferðin skal leikinn á tímabilinu 12. júní til 26. júní og að jafnaði eru 2 vikur veittar fyrir hverja umferð.
Mótsreglur eða keppnisskilmálar má finna hér á vefnum undir Holukeppni GR. Þar er að finna allar nauðsynlegar upplýsingar um holukeppnina.
Golfklúbbur Reykjavíkur í samstarfi við Bílaumboðið Öskju