Bingó er liður í vetrarstarfi eldri kylfinga klúbbsins, 65 ára og eldri. Margir byrja daginn á því að pútta saman á efri hæð Korpunnar áður en bingó hefst.
ATH! Bingó hefst á slaginu 10:00 í veitingasal Korpu.
Bingódagar 2025:
- 21. febrúar
- 21. mars
- 11. apríl – Páskabingó
Bingóspjaldið kostar 500 kr. og er tekið við greiðslum bæði með pening og korti.
Almennt er vel mætt á þennan skemmtilega viðburð, og í þetta skiptið verða glæsilegir vinningar í boði! Við hvetjum alla félagsmenn 65 ára og eldri til að mæta og njóta skemmtilegs morguns í góðum félagsskap.
Golfklúbbur Reykjavíkur