Opna Aukakrónur 2023 á Grafarholtsvelli sunnudaginn 13. ágúst

Opna Aukakrónur 2023 verður haldið á Grafarholtsvelli sunnudaginn 13. ágúst. Ræst er út frá kl. 08:00. Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni og höggleikur. Hámarksforgjöf er gefin 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir 15 efstu sætin í punktakeppni karla og kvenna og 4 efstu sætin í höggleik. Einnig verða veitt nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallar.

Skráning í mótið hefst í mótaskrá á Golfbox fimmtudaginn 3. ágúst kl. 12:00. Mótsgjald er kr. 5.900 og greiðist við skráningu.

Verðlaun:

Höggleikur:

  1. Úrval Útsýn – gjafabréf að verðmæti 250.000 uppí golfferð til Alicante með leiguflugi ÚÚ
  2. 75.000 Aukakrónur
  3. 50.000 Aukakrónur
  4. 25.000 Aukakrónur

Punktakeppni karla:

  1. 100.000 Aukakrónur
  2. 66 norður – Skaftafellsjakki
  3. 50.000 króna gjafabréf – Hverslun
  4. Salomon Speedcross 6 skór frá Ölpunum
  5. A4 – American Tourister handfarangurstaska
  6. Wok on – 10 skipta klippikort – gjafabréf
  7. Wok on – 10 skipta klippikort – gjafabréf
  8. Bestseller – 15 þúsund króna gjafabréf
  9. Gjafabréf fyrir tvo í Fontana
  10. Reykjavík Escape – gjafabréf fyrir tvo
  11. Bílaþvottastöðin Lindin – þvottur og hraðþrif að innan
  12. Bílaþvottastöðin Lindin – þvottur og hraðþrif að innan
  13. Smass/Stél – 5.000 króna gjafabréf
  14. Smass/Stél – 5.000 króna gjafabréf
  15. Langbest veitingastaður – 5.000 króna gjafabréf

 

Punktakeppni kvenna:

  1. 100.000 Aukakrónur
  2. 66 norður – Skaftafellsjakki
  3. 50.000 króna gjafabréf – Hverslun
  4. Salomon Speedcross 6 skór frá Ölpunum
  5. A4 – American Tourister handfarangurstaska
  6. Wok on – 10 skipta klippikort – gjafabréf
  7. Wok on – 10 skipta klippikort – gjafabréf
  8. Bestseller – 15 þúsund króna gjafabréf
  9. Gjafabréf fyrir tvo í Fontana
  10. Reykjavík Escape – gjafabréf fyrir tvo
  11. Bílaþvottastöðin Lindin – þvottur og hraðþrif að innan
  12. Bílaþvottastöðin Lindin – þvottur og hraðþrif að innan
  13. Smass/Stél – 5.000 króna gjafabréf
  14. Smass/Stél – 5.000 króna gjafabréf
  15. Langbest veitingastaður – 5.000 króna gjafabréf


Nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallar:

  • Ísveisla frá Skúbb

Aukakrónur getur þú notað til að greiða fyrir vörur og þjónustu hjá um 200 samstarfsaðilum Aukakróna. Lista yfir samstarfsaðila auk frekari upplýsinga um Aukakrónur er að finna á www.aukakronur.is

Teiggjöf:

  • 20 upphitunarboltar í Básum
  • Aukakrónu-vatnsbrúsi
  • Aukakrónuboltar- og tí
  • Ostborgari og gos að leik loknum


Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur – Skráning og mætingar í mót.

9.1 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag.  Mótsstjóri er Dóra Eyland, dora@grgolf.is

Golfklúbbur Reykjavíkur í samvinnu við Aukakrónur frá Landsbankanum