Opna FJ 2024 verður haldið á Grafarholtsvelli mánudaginn 5. ágúst. Ræst verður út frá kl. 8:00. Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni og höggleikur. Hámarksforgjöf er gefin 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni og 3 efstu sætin í höggleik. Nándarverðlaun eru veitt þeim sem er næstur holu í upphafshöggi á öllum par 3 brautum vallarins. Einnig verða veitt verðlaun fyrir lengsta upphafshögg á 3. braut.
Skráning í mótið hefst í mótaskrá á Golfbox kl. 13:00 fimmtudaginn 25. júlí – mótsgjald er kr. 6.400 og greiðist við skráningu.
Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir þrjá efstu í punktakeppni karla og kvenna auk verðlauna fyrir besta skor í karla- og kvennaflokki.
Punktakeppni karla:
- sæti: FJ HydroLite X regnstakkur og regnbuxur
- sæti: FJ traditions spikeless golfskór og golfsokkar
- sæti: FJ Chill golfpeysa og golfbolur
Punktakeppni kvenna:
- sæti: FJ Hydrolite regnjakki og regnbuxur
- sæti: FJ traditions spikeless golfskór og golfsokkar
- sæti: FJ hálfrennd dömupeysa og golfbolur
Besta skor karla: FJ Traditions spikeless golfskór og FJ Chill
Besta skor kvenna: FJ Traditions spikeless og hálfrennd dömupeysa
Nándarverðlaun:
2.braut: FJ skópoki og belti
6.braut: FJ skópoki og belti
11.braut: FJ skópoki og belti
17.braut: FJ skópoki og belti
Lengsta teighögg á 3. braut:
Gjafabréf fyrir fjóra á velli Golfklúbbs Reykjavíkur og Platínukort í Bása
Allir keppendur fá afhenta teiggjöf áður en leikur hefst.
Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur – Skráning og mætingar í mót.
9.1 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag. Mótsstjóri er Harpa Ægisdóttir og er með netfangið harpa@grgolf.is
Golfklúbbur Reykjavíkur í samvinnu við ÓJK-ÍSAM ehf. og FJ