Customize Consent Preferences

Þessi vefur nýtir sér vafrakökur (e. web cookies) til að bæta virkni hans og hjálpa stjórnendum vefsins að greina notkun hans.

Það er stefna Golfklúbbur Reykjavíkur að nota vafrakökur með ábyrgum hætti.

Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við persónuverndarlög.... 

Always Active

Necessary cookies are required to enable the basic features of this site, such as providing secure log-in or adjusting your consent preferences. These cookies do not store any personally identifiable data.

No cookies to display.

Functional cookies help perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collecting feedback, and other third-party features.

No cookies to display.

Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics such as the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.

No cookies to display.

Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.

No cookies to display.

Advertisement cookies are used to provide visitors with customized advertisements based on the pages you visited previously and to analyze the effectiveness of the ad campaigns.

No cookies to display.

Opna FootJoy 2025 – úrslit!

Yfir 190 manns tóku þátt í Opna FootJoy 2025, sem leikið var á Grafarholtsvelli í dag, frídag verslunarmanna. Veðrið lék við kylfinga í dag, eftir frekar hvassa og blauta Verslunarmannahelgi á sunnanverðu landinu hið minnsta. Ræst var út frá kl.8 til 15. Allir keppendur fengu glæsilega teiggjöf, WeatherSof golfhanska. Hjalti Pálmason úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar kom inn á besta skori í karlaflokki, 66 höggum og Anna Sólveig Snorradóttir úr Golfklúbbnum Keili var á besta skori í kvennaflokki, 70 höggum.

Öll úrslit úr mótinu má sjá í mótskrá á Golfbox en helstu úrslit urðu þessi:

Punktakeppni karla:

  1. Valtýr Guðbrandsson 40 punktar
  2. Karl Arnar Bjarnason 39 punktar (betri seinni 9)
  3. Jóhannes Unnar Barkarson 39 punktar (betri síðustu 3)

Punktakeppni kvenna

  1. Anna Elísabet Sæmundsdóttir 37 punktar
  2. Bjargey Aðalsteinsdóttir 36 punktar (betri seinni 9)
  3. Rakel Þorsteinsdóttir 36 punktar

Besta skor kk. Hjalti Pálmason 66 högg

Besta skor kvk. Anna Sólveig Snorradóttir 70 högg

 

Nándarverðlaun: verða birt þriðjudaginn 5. ágúst
2.braut
– Hjalti Kristján Hjaltason 222 cm.
6.braut – Páll Reynisson 161 cm.
11.braut – Eiður Ísak Broddason 113 cm.
17.braut – Jóhannes Unnar Barkarson 83 cm.

Lengsta drive 3.braut kk. – Ragnar Olsen

Lengsta drive 3.braut kvk. – Anna Sólveig Snorradóttir

Við þökkum keppendum kærlega fyrir daginn og óskum vinningshöfum til hamingju með sinn árangur í mótinu. Hægt verður að nálgast vinninga á skrifstofu klúbbsins frá og með miðvikudeginum 6. ágúst.

Golfklúbbur Reykjavíkur í samvinnu við ÓJK-ÍSAM ehf. og FJ