Opna Icelandair verður haldið á Korpúlfsstaðavelli laugardaginn 14. júní. Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni og verður Leikið í tveimur flokkum, karla- og kvennaflokki. Hámarksforgjöf er 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Lykkjur mótsins verða Sjórinn/Áin.
Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir 4 efstu sætin í hvorum flokki. Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta skor og nándarverðlaun á öllum par 3 holum. Keppendur fá afhenta léttan nestispakka ásamt teiggjöf út á völl.
Verðlaun í Opna Icelandair:
Kvennaflokkur
- 75 þúsund króna inneign hjá Icelandair
- 50 þúsund króna inneign hjá Icelandair
- 25 þúsund króna inneign hjá Icelandair
Karlaflokkur
- 75 þúsund króna inneign hjá Icelandair
- 50 þúsund króna inneign hjá Icelandair
- 25 þúsund króna inneign hjá Icelandair
Besta skor: 50 þúsund króna inneign hjá Icelandair og hringur fyrir fjóra á völlum GR
Nándarverðlaun:
- 3. braut: 30 þúsund Vildarpunktar hjá Icelandair
- 6. braut: 30 þúsund Vildarpunktar hjá Icelandair
- 9. braut: 30 þúsund Vildarpunktar hjá Icelandair
- 13. braut: 30 þúsund Vildarpunktar hjá Icelandair
- 17. braut: 30 þúsund Vildarpunktar hjá Icelandair
Skráning fer fram á Golfbox og hefst kl. 13:00, fimmtudaginn 5. júní. Mótsgjald kr. 6.800 greiðist við skráningu.
Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur – Skráning og mætingar í mót
9.1 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag. Mótsstjóri er Sigríður Guðmundsdóttir, sigridur@grgolf.is
Golfklúbbur Reykjavíkur í samstarfi við Icelandair