Sunnudaginn 12. júní verður Opna Icelandair mótið haldið á Korpúlfsstaðavelli. Ræst verður út frá kl. 08:00 og verða lykkjur mótsins Landið/Áin. Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni. Leikið verður í tveimur flokkum, karla og kvennaflokki. Hámarksforgjöf er gefin 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir 4 efstu sætin í hvorum flokki. Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta skor og nándarverðlaun á öllum par 3 holum vallar.
Skráning í mótið hefst í mótaskrá á Golfbox föstudaginn 3. júní kl. 13:00 – mótsgjald er kr. 5.700 og greiðist við skráningu.
Allir kylfingar fá afhenta teiggjöf og nestispoka áður en leikur hefst.
Verðlaun:
Karlaflokkur:
- 1.sæti 75 þúsund króna inneign hjá Icelandair
- 2.sæti 50 þúsund króna inneign hjá Icelandair
- 3.sæti 20 þúsund króna inneign hjá Icelandair
- 4.sæti 20 þúsund króna inneign hjá Icelandair
Kvennaflokkur:
- 1.sæti 75 þúsund króna inneign hjá Icelandair
- 2.sæti 50 þúsund króna inneign hjá Icelandair
- 3.sæti 20 þúsund króna inneign hjá Icelandair
- 4.sæti 20 þúsund króna inneign hjá Icelandair
Besta skor: 50 þúsund króna inneign hjá Icelandair og fjórir golfhringir völlum GR
Nándarverðlaun:
13.braut – 25 þúsund Vildarpunktar hjá Icelandair
17.braut – 25 þúsund Vildarpunktar hjá Icelandair
22.braut – 25 þúsund Vildarpunktar hjá Icelandair
25.braut – 25 þúsund Vildarpunktar hjá Icelandair
Golfklúbbur Reykjavíkur í samstarfi við Icelandair