Opna NOCCO 2023 haldið laugardaginn 22. júlí – skráning hefst í dag

Opna Nocco 2023 verður haldið á Grafarholtsvelli laugardaginn 22. júlí. Ræst verður út frá kl. 08:00. Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni. Hámarksforgjöf er gefin 24 hjá körlum og 28 hjá konum.

Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir 3 efstu sætin og 15. sæti í punktakeppni karla og kvenna. Punktahæsti kylfingurinn vinnur aðalverðlaun mótsins sem er golfferð fyrir tvo með Eagle Golfferðum til Quinta Marinha í Portúgal  Innifalið er: Beint flug fram og til baka, ferðataska, golfsett og handfarangur. Gisting með morgunmat, flutningur, íslensk fararstjórn og ótakmarkað golf

Nándarverðlaun eru veitt þeim sem er næstur holu í upphafshöggi á öllum par 3 brautum vallarins. Einnig verða veitt verðlaun fyrir lengsta upphafshögg á 3. braut í karla og kvennaflokki.

Skráning í mótið hefst í mótaskrá á Golfbox kl. 12:00 þriðjudaginn 11. júlí – Mótsgjald er kr. 5.900 og greiðist við skráningu.

Punktakeppni karla: 

1.sæti:

  • Gjafakarfa frá NOCCO
  • 20.000 gjafabréf frá Dominos
  • 10.000 gjafabréf frá Sushi Social
  • Laugar Spa gjafabréf

2.sæti:

  • Kassi af NOCCO
  • 20.000 gjafabréf frá Dominos
  • Gjafabréf frá Minigarðinum

3.sæti:

  • Kassi af Nocco
  • Gjafabréf frá Minigarðinum

15.sæti:

  • Stór gjafakarfa frá Core Heildsölu

 

Punktakeppni kvenna: 

1.sæti:

  • Gjafakarfa frá NOCCO
  • 20.000 gjafabréf frá Dominos
  • 10.000 gjafabréf frá Sushi Social
  • Laugar Spa gjafabréf

2.sæti:

  • Kassi af NOCCO
  • 20.000 gjafabréf frá Dominos
  • Gjafabréf frá Minigarðinum

3.sæti:

  • Kassi af Nocco
  • Gjafabréf frá Minigarðinum

 

15.sæti:

  • Stór gjafakarfa frá Core Heildsölu

Nándarverðlaun:
2.braut:
  5 skipta kort frá PreppUp
6.braut:  Kassi af Nocco
11.braut: Kassi af Nocco
17.braut: Kassi af Nocco
18.braut: Hoto fjarlægðarmælir frá Mii.is

Lengsta teighögg á 3. braut:
Karlar:
Nike golfskór að eigin vali hjá H-Verslun
Konur: Gisting fyrir tvo á Hótel Vestmannaeyjar í eina nótt með morgunverði og aðgangi að SPA

Allir keppendur fá afhenta veglega teiggjöf frá NOCCO áður en leikur hefst.

Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur – Skráning og mætingar í mót.
9.1 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag.  Mótsstjóri er Dóra Eyland og er með netfangið dora@grgolf.is

Golfklúbbur Reykjavíkur í samvinnu við Core heildsölu