Páskaopnun GR

Fyrir þá kylfinga sem ætla að nota páskana til að skerpa á sveiflunni fyrir komandi golfsumar, er gott að hafa á hreinu opnunartímana okkar yfir páskana en þeir eru sem hér segir:

  • Inniæfingaaðstaða á Korpu:
    Opið alla páskana frá kl. 8:00-22:00.
    Þar er tilvalið að æfa stutta spilið, vippa og pútta.
  • Thorsvöllur:
    Thorsvöllurinn okkar er alltaf opinn fyrir félagsmenn og tilvalinn til þess að komast út á gras, sjá boltan fljúga og fylgja eftir með því að pútta í holuna – fá tilfinninguna fyrir sumrinu!
  • Básar – opnunartími um yfir páskana:
    Skírdagur kl. 15:00-22:00
    Föstudagurinn langi kl. 15:00-18:00
    Laugardagur kl. 08:00-18:00
    Páskadagur kl. 08:00-20:00
    Annar í páskum kl. 15:00-22:00

Við óskum félagsmönnum okkar gleðilegra páska og óskum þess að þið hafið það sem best!

Leyfum tveimur góðum málsháttum að fylgja:

Góð íþrótt er gulli betri

Æfingin skapar meistarann