Perla Sól hlaut Háttvísibikarinn annað árið í röð

Háttvísisbikarinn er gjöf frá GSÍ í tilefni af 70 ára afmæli GR og er hann veittur ár hvert þeim kylfingi undir 18 ára aldri sem endurspeglar hvað mest þá eiginleika sem GR-ingar vilja sjá í afreksunglingum sínum. Sá einstaklingur sem hlýtur háttvísibikarinn þarf að hafa mikinn íþróttaanda, gefast aldrei upp, sýna miklar framfarir, vera sér og klúbbnum til mikils sóma bæði innan vallar sem utan og umfram allt vera fyrirmynd fyrir aðra í kringum sig.

Perla Sól Sigurbrandsdóttir hlýtur viðurkenninguna í ár, annað árið í röð. Hún er mikil og sterk fyrirmynd fyrir aðra iðkendur – samviskusöm, metnaðarfull og dugleg við æfingar ásamt því að vera einstaklega yfirveguð innan vallar sem utan.

Perla Sól keppti mikið erlendis í ár á mótum eins og Junior Orange Bowl International, Portuguese International Ladies Amateur, German Girls Open, Annika Invitational Amateur, EM einstaklinga og World Junior Girls Championship. Hún var valin ein af fjórum kylfingum til að keppa með úrvalsliði Evrópu í Asia Pacific Golf Confederation (APGC) Junior Championship, sem er mikill heiður og sýnir hversu sterkur kylfingur hún er á heimsvísu. Perla Sól var einnig valin ein af sex til að keppa fyrir hönd Íslands með kvennalandsliðinu í Evrópumóti í liðakeppni áhugakylfinga. Dagana 15.-20. ágúst keppti Perla á R&A Girls Amateur Championship, þar sem hún lék á einu höggi undir pari í höggleiknum og komst í 64 manna úrslit, en tapaði holukeppninni á móti sigurvegara mótsins á 18. holu.

Á Íslandi varð Perla sigursæl á Stigamótaröð GSÍ þar sem hún varð Íslandsmeistari í holukeppni, sigraði Korpubikarinn og varð í kjölfarið Stigameistari Stigamótaraðar GSÍ. Þar fyrir utan var hún í baráttu um að verja Íslandsmeistaratitilinn í höggleik og hafnaði í 2. sæti.

Þegar þetta er skrifað er Perla Sól í 308. sætinu á heimslista áhugakylfinga. Perla Sól er alltaf til fyrirmyndar og er glæsilegur fulltrúi Golfklúbbs Reykjavíkur.

Þetta er í tuttugasta skipti sem bikarinn er afhentur og hefur það einu sinni áður gerst að sami kylfingurinn hlýtur hann tvö ár í röð, það var Ólafía Þórunn árið 2007 og 2008.

Þeir sem hafa áður fengið útnefninguna eru eftirfarandi kylfingar:

2004 Þórður Rafn Gissurarson
2005 Hanna Lilja Sigurðardóttir
2006 Guðni Fannar Carrico
2007 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
2008 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
2009 Andri Þór Björnsson
2010 Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2011 Sunna Víðisdóttir
2012 Ragnhildur Kristinsdóttir
2013 Saga Traustadóttir
2014 Ingvar Andri Magnússon
2015 Gerður Hrönn Ragnarsdóttir
2016 Dagbjartur Sigurbrandsson
2017 Böðvar Bragi Pálsson
2018 Elvar Már Kristinsson
2019 Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir
2020 Tómas Eiríksson Hjaltested
2021 Helga Signý Pálsdóttir
2022 Perla Sól Sigurbrandsdóttir
2023 Perla Sól Sigurbrandsdóttir

Golfklúbbur Reykjavíkur óskar Perlu Sól til hamingju með Háttvísibikarinn 2023