Perla Sól keppir með Evrópuliðinu á APGC Junior Championship á Filippseyjum

Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Íslandsmeistari í golfi 2022 og Evrópumeistari U16 ára, keppir með úrvalsliði Evrópu sem tekur þátt í keppni á Filippseyjum sem hófst í gær, 15. maí og er leikin fram á fimmtudag, 18. maí.

Mótið heitir Asia Pacific Golf Confederation (APGC) Junior Championship.

Alls eru 12 lið sem taka þátt og 24 leikmenn alls.

Tvö tveggja manna lið eru frá Evrópu. Perla Sól verður í liði með Jack Murphy frá Írlandi. Spænsku kylfingarnir Jorge Siyuan Hao og Anna Cañado verða saman í liði.

Keppnisfyrirkomulagið er höggleikur, 54 holur, þar sem að keppt er í einstaklings- og liðakeppni.

Samanlagt skor keppenda í liðakeppninni gildir.

Smelltu hér fyrir rástíma, skor og úrslit 

Eftirfarandi þjóðir/lið taka þátt:
Singapúr
Sri Lanka
Malasía
Taívan
Guam
Hong – Kong, Kína
Filippseyjar
Indland
Taíland
Kórea
Indónesía
EGA*
*(Ísland, Írland, Spánn)

Gangi ykkur vel Perla Sól!