Ragnhildur Kristinsdóttir og Guðrún Brá Björgvinsdóttir hófu leik á lokaúrtökumótinu fyrir LET Evrópumótaröðina 2025 síðastliðinn mánudag, 16. desember – keppni stendur yfir fram á föstudag.
Á lokaúrtökumótinu er keppt á á Al Maaden Golf og Royal Golf völlunum í Marrakech. Þar keppa 154 kylfingar um keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni á næsta tímabili.
Eftir fjóra hringi verður niðurskurður og munu þá 65 efstu kylfingarnir leika lokahringinn.
Kylfingarnir koma frá 39 löndum og unnu flestir sér þátttökurétt í gegnum fyrra stig úrtökumótsins. Ragnhildur lék afar vel á fyrra stiginu sem lauk í síðustu viku þar sem hún fór með sigur af hólmi. Guðrún Brá Björgvinsdóttir vann sér inn keppnisrétt beint á lokaúrtökumótið með góðum árangri á LET Access mótaröðinni í ár þar sem hún endaði í 21. sæti á stigalistanum.
Guðrún Brá hefur leik kl. 9:30 og Ragnhildur leika báðar Al Maaden völlinn.