Starfsfólk óskast í eftirlit á velli GR í sumar – umsóknafrestur til 28. febrúar

Golfklúbbur Reykjavíkur auglýsir eftir starfsfólki til að annast eftirlit á völlum félagsins fyrir golfsumarið 2023. Við leitum eftir stundvísum, glaðlyndum og samviskusömum einstaklingum sem eru ábyrgðarfullir og búa yfir ríkri þjónustulund ásamt hæfni í mannlegum samskiptum.

Klúbburinn rekur tvo golfvelli á höfuðborgarsvæðinu, Grafarholtsvöll og Korpu auk æfingasvæðis Bása í Grafarholti. Í Grafarholtinu er 18 holu golfvöllur auk Grafarkots, sem er 6 holu æfingavöllur Korpúlfsstaðarvöllur er 27 holu golfvöllur auk Thorsvallar, 9 holu æfingavöllur.

Auglýst er eftir fólki til starfa á báða velli félagsins og eru konur jafnt sem karlar hvattar til að sækja um. Kostur er ef umsækjendur hafa einhverja þekkingu á golfíþróttinni þó ekki sé gerð krafa um það. 

Helstu verkefni eftirlitsmanna eru eftirlit með umgengni og leikhraða á völlum, þjónusta við félagsmenn, umsjón og afhending golfbíla, almennt hreinlæti á vallarsvæðum og önnur tilfallandi störf.

Umsóknir skulu berast á netfangið gr@grgolf.is fyrir þriðjudaginn 28. febrúar, merkt „GR – Eftirlit“

Golfklúbbur Reykjavíkur