Golftímabilinu 2022 fer nú senn að ljúka en þrátt fyrir að sumarið hafi aldrei lent almennilega hjá okkur þá nýttust dagarnir kylfingum vel. Eins og venja er þá lokar öll starfsemi í klúbbhúsum frá og með 1. október sem þýðir að frá og með laugardegi mun öll þjónusta – golfverslanir og veitingasölur loka. Athugið að eldhús KH Klúbbhús hefur lokar í dag og verða eingöngu kaffiveitingar í boði þá daga sem eftir eru fram að helgi.
Vellir verða áfram opnir félagsmönnum á meðan veður leyfir en tilkynningar settar inn í rástímabókun á Golfbox ef um lokanir er að ræða og hvetjum við félagsmenn til að fylgjast með þar þegar kalt er í veðri.
Hægt verður að mæta á efri hæð Korpunnar í vetur til að æfa púttin og verður klúbbhús þar opið þó almenn þjónusta liggi niðri. Salernisaðstaða við 6. og 15. teig Korpu og við 10. teig Grafarholtsvallar verður áfram eitthvað opið og tilkynnt um þegar það lokar.
Æfingasvæði Bása er opið alla daga vikunnar en þar tekur við vetraropnun frá og með laugardegi 1. október – vetraropnun má sjá hér
Skrifstofa klúbbsins er opin alla virka daga frá kl. 09-16 og bendum við félagsmönnum á að hafa samband þangað ef eitthvað er.
Við þökkum félagsmönnum fyrir golftímabilið sem nú er að líða og vonum að hægt verði að halda völlum opnum áfram eitthvað fram á haustið!
Golfklúbbur Reykjavíkur