Þjónusta í klúbbhúsum lokar frá og með mánudegi, 2. október – vellir áfram opnir fyrir félagsmenn

Golftímabilinu 2023 fer nú formlega að ljúka, vegna veðurs fyrripart sumars fór tímabilið seinna af stað en venjulega en það rættist heldur betur úr þegar líða fór á sumarið og hafa félagsmenn getað nýtt sér vellina vel. Eins og venja er á þessum tíma árs þá lokar öll starfsemi í klúbbhúsum frá og með mánaðarmótum september/október.

Á hádegi föstudaginn 29. september mun veitingasala hjá KH Klúbbhús (Grafarholt og Korpa) loka formlega fyrir veturinn. Starfsmenn verða í golfverslunum um komandi helgi en frá og með mánudeginum 2. október mun öll þjónusta í klúbbhúsum loka.

Á meðan veður leyfir verða vellir félagsins áfram opnir félagsmönnum, við hvetjum félagsmenn til að fylgjast með í rástímabókun Golfbox ef um lokanir er að ræða en þar verða settar inn tilkynningar ef ekki er hægt að hafa velli opna.

Hægt verður að mæta á efri hæð Korpunnar í vetur til að æfa púttin og verður klúbbhús opið þó almenn þjónusta liggi niðri. Salernisaðstaða við 6. og 15. teig Korpu og við 10. teig Grafarholtsvallar verður áfram eitthvað opið og tilkynnt um þegar það lokar.

Æfingasvæði Bása er opið alla daga vikunnar en vetraropnun frá og með næstkomandi laugardegi, 30. september – vetraropnun má sjá hér

Skrifstofa klúbbsins er opin alla virka daga frá kl. 09-16 og geta félagsmenn alltaf haft samband við okkur þangað ef eitthvað er.

Við þökkum félagsmönnum fyrir golftímabilið sem nú er að líða og vonum að hægt verði spila velli félagsins eitthvað áfram fram á haustið.

Golfklúbbur Reykjavíkur