Þrír íslenskir kylfingar léku í dag á lokaúrtökumóti fyrir Opna breska áhugamannamótið. Það voru þeir Tómas Eiríksson Hjaltested, Dagbjartur Sigurbrandsson og Aron Emil Gunnarsson.
72 kylfingar léku um 23 laus sæti í mótinu, sem er eitt stærsta mót ársins fyrir áhugakylfinga. Leikið var á Royal Cinque Ports vellinum sem er staðsettur á austurströnd Bretlands.
Við í Golfklúbbi Reykjavíkur erum óendanlega stolt af okkar tveimur fulltrúum á þessu úrtökumóti sem lauk með því að þeir spiluðu sig inn á Opna breska áhugamannamótið.
Tómas Hjaltested fór fyrstur af stað í morgun og byrjaði sinn hring á fugli. Hann fylgdi því eftir með góðri spilamennsku á deginum og endaði á 70 höggum, tveimur undir pari. Tómas endaði jafn í 11. sæti og hefur því unnið sér inn þátttökurétt á Opna breska áhugamannamótinu sem hefst mánudaginn 16. júní.
Dagbjartur fór síðastur af stað. Hann opnaði hringinn á fugli, líkt og Tómas, og var kominn tvo undir par eftir sex holur. Eftir skolla á 15. holu var nokkuð ljóst að fugl þyrfti að detta á síðustu holunum til að Dagbjartur væri öruggur áfram. Þar sýndi hann stáltaugar, rúllaði þremur góðum púttum í og lék síðustu þrjár holurnar einn undir pari. Hann lauk því leik á 70. höggum og jafn í 11. sæti mótsins.
Opna breska áhugamannamótið hefst þann 16. júní, og verður leikið á Royal St. George’s og Royal Cinque Ports völlunum.
Sex íslenskir kylfingar verða nú á meðal þátttakenda í mótinu, en þeir Gunnlaugur Árni Sveinsson, Logi Sigurðsson, Veigar Heiðarsson og Guðjón Frans Halldórsson komust sjálfkrafa inn í mótið út frá stöðu sinni á heimslistanum.
Tómas og Dagbjartur spila sig inn á Opna breska áhugamannamótið – Golfsamband Íslands
Áfram GR!