Frestur til úrsagnar úr félaginu er nú liðinn en félagsmenn hafa til 28. febrúar ár hvert til að gera grein fyrir aðild sinni. Berist úrsögn eftir 1. mars fást félagsgjöld ekki endurgreidd nema gegn framvísun læknisvottorðs.
Ef félagsmaður slasast eða veikist eftir að golftímabilið hefst endurgreiðir Golfklúbbur Reykjavíkur félagsgjöld sbr. neðangreint:
Berist tilkynning fyrir 1. júní = 75% endurgreiðsla
Berist tilkynning fyrir 1. júlí = 50% endurgreiðsla
Berist tilkynning fyrir 15. ágúst = 25% endurgreiðsla
Berist tilkynning eftir 15. ágúst ár hvert er engin endurgreiðsla á félagsgjöldum
Golfklúbbur Reykjavíkur