Kæru félagsmenn
Líkt og undanfarin ár hefur Golfklúbbur Reykjavíkur gert vinavallarsamninga við 12 frábæra golfvelli víðs vegar um landið. Félagsmenn geta spilað þeirra glæsilegu velli á ferð sinni um landið gegn vinavallargjaldi hvers vallar fyrir sig.
Vinavellirnir eru staðsettir um allt land og veita félagsmönnum frábært tækifæri til að spila skemmtilega velli og jafnvel kynnast nýjum völlum, njóta útiverunnar, hreyfingarinnar og félagsskapsins sem golfið býður upp á, á ólíkum landsvæðum Íslands.
Vinavellirnir okkar árið 2025 eru:
- Bárarvöllur í Grundarfirði
- Garðavöllur – Leynir á Akranesi
- Gufudalsvöllur í Hveragerði
- Hamarsvöllur í Borgarnesi
- Hellishólar í Fljótshlíðnni
- Hlíðarendavöllur í Skagafirði
- Hólmsvöllur – Leiran á Suðurnesjum
- Kirkjubólsvöllur í Sandgerði/Garði
- Strandarvöllur á Hellu
- Svarfhólsvöllur á Selfossi
- Úthlíðarvöllur í Úthlíð
- Vestmannaeyjavöllur í Vestmannaeyjum
Við mælum með að félagsmenn kynni sér verðskrá og bókunarreglur hjá hverjum vinavelli fyrir sig, þar sem það getur verið mismunandi eftir völlum. Allar upplýsingar um verð og símanúmer má finna á síðunni okkar með því að smella á þenan hlekk hér GR – vinavellir
Gleðilegt golfsumar – Golfklúbbur Reykjavíkur