Vormót GR kvenna haldið á Hamarsvelli sunnudaginn 22. maí

Sælar kæru GR konur,

Það er komið að fyrsta móti sumarsins, vormótinu sem er verður haldið sunnudaginn 22. maí næstkomandi. Að þessu sinni ætlum við GR konur á Hamarsvöll í Borgarnesi og eiga þar góðan dag og spila golf saman.

Spilað verður Greensome þar sem tvær leika saman í liði, höggleik með forgjöf þar sem hámarksforgjöf er 32. Til að mynda liðsforgjöfina fær liðið 40% af hærri forgjöfinni og 60% af lægri forgjöfinni.

Ræst verður út af öllum teigum kl.10.00.

Spilað er um:

  • 1.-3. sæti í punktakeppni
  • Nándarverðlaun á öllum par 3 brautum vallarins
  • Einnig verður dregið úr skorkortum.

Mótsgjaldið er 8.000 kr. innifalið er teiggjöf, vallargjald og máltíð á Hótel Hamri að loknu móti.

Skráning hefst 17. maí kl. 12:00 í golfboxinu og þar raða konur sér í holl.

ATH! Mótsgjaldið 8.000 kr. greiðist inná reikn. 0528-14-405227 kt. 070571-3319

Skráningu lýkur föstudaginn 20. maí og þá detta þær út sem ekki hafa greitt mótsgjaldið og biðlisti tekur við.

Upp með fjörið og út á völl og allar saman nú – tökum vel á móti sumrinu og skemmtum okkur saman!

Kvennanefnd GR