Customize Consent Preferences

Þessi vefur nýtir sér vafrakökur (e. web cookies) til að bæta virkni hans og hjálpa stjórnendum vefsins að greina notkun hans.

Það er stefna Golfklúbbur Reykjavíkur að nota vafrakökur með ábyrgum hætti.

Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við persónuverndarlög.... 

Always Active

Necessary cookies are required to enable the basic features of this site, such as providing secure log-in or adjusting your consent preferences. These cookies do not store any personally identifiable data.

No cookies to display.

Functional cookies help perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collecting feedback, and other third-party features.

No cookies to display.

Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics such as the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.

No cookies to display.

Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.

No cookies to display.

Advertisement cookies are used to provide visitors with customized advertisements based on the pages you visited previously and to analyze the effectiveness of the ad campaigns.

No cookies to display.

Opna ICEWEAR leikið á Korpu laugardaginn 28. maí

Fyrsta opna mót sumarsins, OPNA ICEWEAR verður haldið á Korpu laugardaginn 28. maí. Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni og höggleikur. Hámarksforgjöf er gefin 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Lykkjur mótsins verða Sjórinn/Áin og verður ræst verður út frá kl. 08:00.

Korpúlfsstaðavöllur kemur frábærlega vel undan vetri og hlökkum við til að taka á móti kylfingum á fyrsta opna móti ársins.

Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir 4 efstu sætin í punktakeppni í karla- og kvennaflokki. Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta skor auk nándarverðlauna á öllum par 3 brautum vallarins.

Skráning í mótið hefst fimmtudaginn 19. maí kl. 12:00 og fer fram í mótaskrá á Golfbox. Mótsgjald er kr. 5.700 og greiðist við skráningu. Allir keppendur fá afhenta teiggjöf frá ICEWEAR við útræsingu.

Verðlaun í OPNA ICEWEAR mótinu:

Karlaflokkur – punktakeppni:

  1. Gjafabréf að verðmæti kr. 50.000
  2. Gjafabréf að verðmæti kr. 40.000
  3. Gjafabréf að verðmæti kr. 25.000
  4. Gjafabréf að verðmæti kr. 10.000

Kvennaflokkur – punktakeppni:

  1. Gjafabréf að verðmæti kr. 50.000
  2. Gjafabréf að verðmæti kr. 40.000
  3. Gjafabréf að verðmæti kr. 25.000
  4. Gjafabréf að verðmæti kr. 10.000

Besta skor: Gjafabréf að verðmæti kr. 50.000

Nándarverðlaun:
3.braut – Gjafabréf að verðmæti kr. 10.000
6.braut – Gjafabréf að verðmæti kr. 10.000
9.braut – Gjafabréf að verðmæti kr. 10.000
12.braut – Gjafabréf að verðmæti kr. 10.000
17.braut – Gjafabréf að verðmæti kr. 10.000

Við vekjum athygli á því að skráning fer eingöngu fram í gegnum vefinn.

Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur – Skráning og mætingar í mót.
9.1 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag.  Mótsstjóri er Harpa Ægisdóttir og er með netfangið harpa@grgolf.is