Customize Consent Preferences

Þessi vefur nýtir sér vafrakökur (e. web cookies) til að bæta virkni hans og hjálpa stjórnendum vefsins að greina notkun hans.

Það er stefna Golfklúbbur Reykjavíkur að nota vafrakökur með ábyrgum hætti.

Allar persónuupplýsingar sem kunna að að verða til við notkun á kökum verða meðhöndlaðar og unnið með þær í samræmi við persónuverndarlög.... 

Always Active

Necessary cookies are required to enable the basic features of this site, such as providing secure log-in or adjusting your consent preferences. These cookies do not store any personally identifiable data.

No cookies to display.

Functional cookies help perform certain functionalities like sharing the content of the website on social media platforms, collecting feedback, and other third-party features.

No cookies to display.

Analytical cookies are used to understand how visitors interact with the website. These cookies help provide information on metrics such as the number of visitors, bounce rate, traffic source, etc.

No cookies to display.

Performance cookies are used to understand and analyze the key performance indexes of the website which helps in delivering a better user experience for the visitors.

No cookies to display.

Advertisement cookies are used to provide visitors with customized advertisements based on the pages you visited previously and to analyze the effectiveness of the ad campaigns.

No cookies to display.

Meistaramót GR 2023 hefst sunnudaginn 2. júlí – rástímar fyrsta keppnisdag birtir

Meistaramót GR 2023 hefst á sunnudag og hafa rástímar sunnudagsins verið sendir á keppendur og birtir í mótaskrá á Golfbox,  ræst verður út frá kl. 08:00 á báðum völlum, Grafarholtsvelli og Korpúlfsstaðavelli.

Í Grafarholti hefja leik: 5. flokkur karla, hærri forgjafaraflokkar 50 ára og eldri, 65 ára og eldri konur og 70 ára og eldri karlar. Rástíma þessara flokka er að finna í Golfbox undir mótinu „Meistaramót GR 2023 – 3 dagar Holtið-Korpa-Korpa“

Á Korpu hefja leik allir barna- og unglingaflokkar, 3.fl. karla og kvenna og 4.fl. karla og kvenna. Rástíma fyrir þessa flokka er að finna í Golfbox undir „Meistaramót GR 2023 – 3 dagar Korpa-Holtið-Holtið + Landið“ – 10 ára og yngri barnaflokkar leika 9 holur á Landinu alla keppnisdaga.

Upplýsingar um skor og stöðu í mótinu verður hægt að sjá inni mótum á Golfbox.

KH Klúbbhús mun opna veitingasölu í klúbbhúsum félagsins hálftíma fyrir fyrsta rástíma.

Golfæfingasvæði Bása verður opið frá kl. 06-22 sunnudag til föstudags og verður boðið upp á fría upphitunarbolta fyrir keppendur alla mótsdaga.

Allar helstu upplýsingar er hægt að finna hér á vefnum undir Golf – Meistaramót

Góða skemmtun og gangi ykkur vel!
Golfklúbbur Reykjavíkur