Frábær stemmning var í dag þegar 90 ára afmælismót félagsins var leikið á Korpu. Ræst var út á öllum 9 holu lykkjum kl. 09:00 og aftur kl. 12:00. Tekið var á móti gestum með morgunverð og boðið upp á hamborgara og drykk að leik loknum. Deginum lauk svo með verðlaunaafhendingu og afmælisveislu þar sem keppendum og gestum var boðið upp á kaffi og afmælisköku.
Veitt voru verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni og höggleik á hverri lykkju auk nándarverðlauna á öllum 7 par 3 holum vallarins.
Grímur Kolbeinsson mætti og festi daginn á filmu með okkur og má sjá myndir frá deginum hér.
Úrslit dagsins má sjá hér:
Sjórinn
Punktakeppni:
- Ólafur Arinbjörn Sigurðsson, 20 punktar
- Matthías Waage, 18 punktar
- Guðmundur Marinó Ásgrímsson, 17 punktar
Höggleikur:
- Guðmundur Arason, 37 högg – betri á síðustu 6
- Grímur Þórisson, 37 högg
- Sigurður Fannar Guðmundsson, 40 högg
Áin
Punktakeppni:
- Guðrún Ýr Birgisdóttir, 20 punktar
- Aðalsteinn Sigurþórsson, 20 punktar
- Valdimar Kristjónsson, 20 punktar
Höggleikur:
- Jón Kristbjörn Jónsson, 36 högg
- Valdimar Róbert Tryggvason, 38 högg
- Rúnar Jónsson, 40 högg
Landið
Punktakeppni:
- Styrkár Jafet Hendriksson, 21 punktur
- Guðrún Marín Viðarsdóttir, 20 punktar
- Rúnar Jón Árnason, 20 punktar
Höggleikur:
- Emil Hilmarsson, 39 högg
- Steinunn Sæmundsdóttir, 40 högg
- Erna Steina Eysteinsdóttir, 41 högg
Nándarverðlaun:
- 3.braut – Árni Sigurjónsson, 8,63m
- 6.braut – Steinunn Braga, 2,01m
- 9.braut – Gísli Guðni Hall, 2,63m
- 13.braut – Diljá Einarsdóttir, 1,60m
- 17.braut – Lilja Björk, 1,50m
- 22.braut – Tinna Sól Björgvinsdóttir, 2,30m
- 25.braut – Steinunn Sæmundsdóttir, 6,57m
Við óskum sigurvegurum dagsins innilega til hamingju með sinn árangur og þökkum keppendum öllum fyrir að koma og halda upp á afmæli félagsins með okkur.
Rekstaraðilum Klúbbhúss – Karen, Mjöll og Gumma þökkum við kærlega fyrir frábærar veitingar og þjónustu í allan dag.
Stjórn & starfsfólk GR